Tæma Árbæjarlón til frambúðar

Frá Elliðaárstíflu í Elliðaárdal.
Frá Elliðaárstíflu í Elliðaárdal. mbl.is/Ómar Óskarsson

Norðurhluti Árbæjarlóns, fyrir ofan stífluna í Elliðaánum, verður tæmdur til frambúðar á morgun.

Verður lónið tæmt í samráði við Hafrannsóknastofnun, sem hefur lagt til að komið verði á náttúrulegu rennsli í gegnum stífluna, þ.e. að ekki sé átt við lokur til að stýra því og þær hafðar opnar allt árið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur. Segir í henni að ástæður þessarar breytingar séu vatnsgæðamælingar sem gerðar voru í ánni neðan stíflunnar meðan á tæmingu stóð í vor.

Ekki æskileg fyrir lífríkið

„Niðurstöður sýndu að þessi árlega tæming á lóninu er ekki æskileg fyrir lífríkið. Í þessu nýja fyrirkomulagi eru hagsmunir lífríkisins hafðir að leiðarljósi enda Elliðaár og dalurinn allur einstök náttúru- og útivistarperla í borg. Við tæmingu lónsins færast árnar nær sinni náttúrulegu mynd til frambúðar,“ segir í tilkynningunni.

Undanfarin ár hafi fyrirkomulagið verið þannig að lónið sé tæmt á vorin til að opna fyrir fiskgengd í gegnum stífluna.

„Nokkrum dögum eftir tæmingu lónsins er fyllt upp í norðurhluta Árbæjarlóns (andapollinn) en lokurnar sunnan til hafðar opnar fyrir fiskgegnd fram á haust. Þá er fyllt upp í lónið og það sett á yfirfall yfir veturinn. Nú verður horfið frá þessu fyrirkomulagi enda stíflan rekin út frá hagsmunum lífríkisins eftir að raforkuvinnslu í Elliðaárstöð var hætt.“

Moldarbakki muni myndast

Tekið er fram að eftir tæminguna muni myndast moldarbakki þar sem lónið er. Það svæði verði grætt upp.

„Gert er ráð fyrir að bera fræslægju á svæðið en þá er grasið slegið meðfram bökkum og dreift yfir þann hluta sem var undir lóninu til að flýta fyrir náttúrulegri framvindu staðargróðurs. Þetta er aðferð sem hefur verið notuð á athafnasvæði OR-samstæðunnar með góðum árangri.“

Fuglum á lóninu muni fækka, en þeir muni mögulega færa sig upp með ánni.

„Að öðru leyti ætti fuglalíf ofan lónsins og fyrir neðan Árbæjarstíflu ekki að verða fyrir miklum áhrifum af þessari breytingu,“ segir í tilkynningunni. Bent er á að hægt sé að kynna sér minnisblað fuglafræðings um áhrif á fuglalíf hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert