Ungt fólk og leigjendur með lakari eldvarnir

Slökkviliðsmaður að störfum. Mynd úr safni.
Slökkviliðsmaður að störfum. Mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Eldvörnum er víða ábótavant hjá fólki á aldrinum 25-34 ára, leigjendum og þeim sem búa í stærri fjölbýlishúsum. Í 45 prósent íbúða í leiguhúsnæði er enginn eða aðeins einn reykskynjari og hlutfallið er svipað í fjölbýlishúsum með sex íbúðum eða fleiri. Að meðaltali er þetta hlutfall 28 prósent og allt niður í 20 prósent á heimilum utan höfuðborgarsvæðisins.

Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Gallup hefur gert fyrir Eldvarnabandalagið, sem er samstarfsvettvangur ýmissa aðila um eflingu eldvarna.

Eldvarnir lakari í Reykjavík

Þær leiða einnig í ljós að eldvarnir á heimilum í Reykjavík eru mun lakari en á heimilum í nágrannasveitarfélögum og sérstaklega miðað við heimili utan höfuðborgarsvæðisins.

Fjöldi reykskynjara sé að meðaltali 2,8 á heimilum í höfuðborginni en 3,7 á heimilum utan höfuðborgarsvæðisins. Þá sé mun algengara að enginn eða aðeins einn reykskynjari sé á heimilum í Reykjavík en utan höfuðborgarsvæðisins.

Gallup gerði könnunina 30. september til 7. október síðastliðinn. Þátttökuhlutfall var 58,2 prósent. Gallup hefur gert sambærilegar kannanir fyrir Eldvarnabandalagið og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) á tveggja ára fresti síðan 2006 og hafa niðurstöður jafnan verið birtar í aðdraganda Eldvarnaátaks LSS sem hefst 19. nóvember.

Brýnt að hafa tvær flóttaleiðir

Kannanirnar hafa sýnt að heimilin auka eldvarnir jafnt og þétt.

„Aldrei hafa jafn fáir sagst ekki vera með reykskynjara eða um þrjú prósent. Þeim fjölgar jafnt og þétt sem eru með fjóra reykskynjara eða fleiri. Æ fleiri segjast vera með allt í senn reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi,“ segir í tilkynningu frá Eldvarnabandalaginu.

Bandalagið mæli þá með því að hafa reykskynjara í öllum rýmum, slökkvitæki við helstu flóttaleið og eldvarnateppi á sýnilegum stað í eldhúsi. Um leið sé brýnt að allir hafi að minnsta kosti tvær flóttaleiðir úr íbúðinni.

„Frávik frá þessu eru sem fyrr segir mjög mikil. Þannig segja aðeins 57 prósent svarenda á aldrinum 25-34 ára að slökkvitæki sé á heimilinu en að meðaltali er slökkvitæki á 75 prósent heimila. Svipaða sögu er að segja af eldvarnateppum. Þau er að finna á aðeins 48 prósentum heimila fólks á aldrinum 25-34 ára en 64 prósent að meðaltali. Þá eru slökkvitæki á 66 prósent heimila í Reykjavík en 81 prósent heimila utan höfuðborgarsvæðisins,“ segir í tilkynningunni.

Handbók Eldvarnabandalagsins má finna á www.eldvarnabandalagid.is. Helstu styrktaraðilar Eldvarnaátaksins eru Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, 112, Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands, TM og slökkviliðin í landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert