Mótfallin þjóðaratkvæðagreiðslu um flugvöllinn

Reykjavíkurflugvöllur. Aðalbrautin sem liggur frá norðri til suðurs.
Reykjavíkurflugvöllur. Aðalbrautin sem liggur frá norðri til suðurs. mbl.is/Sigurður Bogi

Reykjavíkurborg leggst eindregið gegn því að þingsályktunartillaga um að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um framtíð Reykjavíkurflugvallar verði samþykkt.

Þetta kemur fram í umsögn borgarlögmanns um tillöguna sem var lögð fram á fundi borgarráðs í gær. Þar var umsögnin samþykkt af borgarráðsfulltrúum Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins.

„Umrædd tillaga til þingsályktunar er í andstöðu við stjórnarskrárvarinn sjálfsstjórnarrétt og skipulagsvald sveitarfélaga. Þá er bent á í umsögn borgarlögmanns og borgarstjóra að niðurstaða slíkrar ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu getur hvorki bundið Reykjavíkurborg né haggað gildi lögmætra skipulagsáætlana sem gilda um Reykjavíkurflugvöll. Þá er bent á að nú þegar er að störfum hópur sem kannar Hvassahraun til hlítar sem nýtt flugvallarstæði. Sá hópur á að skila niðurstöðu fyrir lok árs 2022,“ segir í bókun meirihlutans.

Þingmenn úr röðum allra flokka Alþingis, nema Viðreisnar og Samfylkingarinnar, eru flutningsmenn þingsályktunartillögunnar. Sambærilegar tillögur hafa verið fluttar fimm sinnum áður, síðast á 150. löggjafarþingi, að því er kemur fram í greinargerð með þingsályktunartillögunni.

Í umsögn borgarlögmanns kemur fram að fulltrúar Reykavíkurborgar séu reiðubúnir til að mæta fyrir þingnefnd til að gera betur grein fyrir sjónarmiðunum í umsögninni.

„Sláandi“ umsögn

Í bókun Sjálfstæðisflokksins kemur þetta fram: „Þann 28. nóvember 2019 undirrituðu borgarstjóri og samgönguráðherra samkomulag um að rekstraröryggi Reykjavíkurflugvöllur yrði tryggt áfram í óskertri mynd þar til annar jafngóður eða betri kostur hafi fundist. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sagði orðrétt við þetta tilefni: „Það er mjög ánægjulegt að hafa náð samkomulagi við borgina um að flugvöllur verði áfram í Vatnsmýri þar til annar jafngóður eða betri kostur verður tilbúinn. Það skapar öryggi fyrir innanlandsflugið og heldur þeirri góðu tengingu sem verður að vera milli landsbyggðar og höfuðborgar.“

Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins segir í sinni bókun að Reykjavíkurborg krefjist þess að vera sjálfstæð, sérstaklega í skipulagsmálum. En þegar komi að bágum fjármálum borgarinnar eigið ríkið að koma með gríðarlegt fjármagn inn í reksturinn.  

Reykjavíkurflugvöllur.
Reykjavíkurflugvöllur. mbl.is

„Umsögn borgarlögmanns er sláandi þegar litið er til samnings ríkisins við Reykjavíkurborg um framtíð Reykjavíkurflugvallar frá 29. nóvember 2019. Ég hef nú þegar skrifað stjórn umhverfis- og samgöngunefndar bréf þar sem ég lýsti yfir forsendubresti Reykjavíkurborgar við samninginn. Búið er að tryggja 200 milljónir til „rannsókna“ í Hvassahrauni og skiptu ríki og borg kostnaðinum til helminga. Þau rök borgarinnar að vera á móti þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar eru fáránleg þegar litið er til þess að í umsögninni er sífellt klifað á íbúakosningu sem haldin var í Reykjavík árið 2001,“ segir meðal annars í bókuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert