Klasasmit á höfuðborgarsvæðinu

Töluverðar annir hafa verið hjá slökkviliðinu í dag.
Töluverðar annir hafa verið hjá slökkviliðinu í dag. Ljósmynd/SHS

Upp hefur komið hópsmit eða klasasmit á höfuðborgarsvæðinu. Þetta varð ljóst í dag.

Varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir í samtali við mbl.is að töluverðar annir hafi verið í dag við að flytja fólk með staðfest smit í farsóttarhús.

Tölur um fjölda greindra smita verða ekki birtar fyrr en á morgun.

Alls greind­ust fjög­ur kór­ónu­veiru­smit inn­an­lands í gær en báða dagana á und­an voru þau átta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert