Sættum okkur ekki við árásir eða hótanir

Skotgöt á skrifstofu Samfylkingarinnar.
Skotgöt á skrifstofu Samfylkingarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samfylkingin lýsir yfir þungum áhyggjum af skotárásum á skrifstofur stjórnmálaflokka og heimili stjórnmálafólks.

„Tilefnið eru ítrekaðar árásir á höfuðstöðvar stjórnmálaflokka með skotvopnum, nú síðast með fjölda skota á skrifstofu Samfylkingarinnar og alvarleg árás í garð Dags B. Eggertssonar borgarstjóra og fjölskyldu hans. Engin dæmi eru um jafn alvarlega árás í garð stjórnmálamanns á Íslandi,“ segir í yfirlýsingu frá stjórn Samfylkingarinnar. 

Flokkurinn bætir við að lýðræði og frjáls skoðanaskipti séu mikil verðmæti hverju samfélagi. Hérlendis höfum við vanist því að stjórnmálafólk geti gengið um án sérstakrar öryggisgæslu og að almenningur geti tekið þátt í starfi stjórnmálaflokka án þess að óttast afleiðingar.

„Sama hvaða stjórnmálaflokk við kjósum, þá þurfum við að vernda grunnstoðir lýðræðisins og megum ekki sætta okkur við árásir, hótanir og ógnir í garð fólks í stjórnmálum eða vegna stjórnmálaskoðana þess,“ segir í tilkynningunni.

Vörður segir árásirnar vekja óhug

Stjórn Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna, hefur einnig sent frá sér ályktun þar sem hún fordæmir skotárásir gegn stjórnmálaflokkum, starfsfólki þeirra og kjörnum fulltrúum.

„Fréttir sem fluttar voru fyrir helgi af skotárásum á starfstöðvar stjórnmálaflokka og fréttir dagsins í dag af skotárás á bifreið borgarstjóra Reykjavíkur vekja óhug. Árásir af þessum toga eru aðför gegn lýðræðinu sjálfu, gegn rétti fólks til að mynda og tjá sér skoðanir á opinberum vettvangi. Slíkar árásir mega ekki líðast í opnu og frjálsu samfélagi,“ segir í ályktuninni.

„Það er von stjórnar Varðar að lögreglan hafi fljótt og örugglega hendur í hári þeirra sem hafa unnið þessi voðaverk. Hugur stjórnarinnar liggur hjá borgarstjóra og starfsmönnum þeirra stjórnmálaflokka sem orðið hafa fyrir þessum árásum, vonandi munu hvorki þeir né nokkrir aðrir þurfa að upplifa slík voðaverk framar hér á landi.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert