Geysir og Kerlingarfjöll friðlýst gegn orkuvinnslu

Í Hveradölum við Kerlingafjöll er mikið háhitasvæði, sem nú er …
Í Hveradölum við Kerlingafjöll er mikið háhitasvæði, sem nú er verndað fyrir orkunýtingu. mbl.is/RAX

Geysir og Kerlingarfjöll voru í dag friðlýst gegn orkuvinnslu í samræmi við lög um verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun). Áður hafði Geysir verið friðlýstur sem náttúruvætti og Kerlingafjöll öll friðlýst sem landslagsverndarsvæði. Innan svæðanna eru fimm orkukostir í rammaáætlun sem Alþingi ákvað árið 2013 að myndu fara í verndarflokk.

Tilgangur og markmið friðlýsinganna er að vernda háhitasvæði Geysis og Kerlingarfjalla gegn orkuvinnslu yfir 50MW í varmaafli og uppsettu rafafli yfir 10MW. Friðlýsing svæðanna nú nær ekki til annarra þátta en orkuvinnslu.

Í rökstuðningi verkefnisstjórnar rammaáætlunar fyrir flokkun Geysis í verndarflokk og friðlýsingu þess, kemur fram að á svæðinu séu heimsþekktar náttúruminjar og að svæðið sé mikilvægt ferðamannasvæði. Svæðið er eitt þekktasta goshverasvæði jarðar, einstakt á heimsvísu og einn mest sótti ferðamannastaðurinn á Íslandi.

Frá háhitasvæði Geysis, en það er Strokkur sem gýs.
Frá háhitasvæði Geysis, en það er Strokkur sem gýs. mbl.is/Árni Sæberg

Í rökstuðningi fyrir verndun háhitasvæðis Kerlingarfjalla í rammaáætlun kemur fram að á svæðinu sé sérstætt og verðmætt landslag og að þar séu lítt röskuð víðerni. Kerlingarfjöll eru fjallabálkur skammt suðvestur af Hofsjökli. Svæðið er að hluta óbyggt víðerni sem einkennist af stórbrotnu og litríku landslagi. Mikil líparítfjöll einkenna svæðið, meðal annars svonefndir líparítstapar, sem eru fágætir á heimsvísu. Í Kerlingarfjölum er allmikið háhitasvæði og skiptist það í þrjú meginsvæði; Hverabotn, Hveradali og Efri-Hveradali og þrífst sérstætt lífríki örvera í hverunum. Þá hefur í Hverabotni mælst hæsta skráða hitamæling í hver á Íslandi, á bilinu 145 til 150°C.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu er haft eftir Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra, að friðlýsingarnar séu hluti af friðlýsingarátaki sem var ýtt úr vör árið 2018. „Friðlýsingarnar tvær eru mikilvægur áfangi í að vernda íslenska náttúru enda Geysir og Kerlingarfjöll meðal okkar helstu náttúruperla. Áður hafa Jökulsá á Fjöllum, Gjástykki og Brennisteinsfjöll verið friðlýst gegn orkuvinnslu en lög um rammaáætlun kveða á um að svo sé gert þegar Alþingi hefur ákveðið hvaða orkukostir fari í verndarflokk,“ er haft eftir honum.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Sigríður Auður Arnardóttir …
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Sigríður Auður Arnardóttir ráðuneytisstjóri við undirritunina Ljósmynd/Stjórnarráðið
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert