Miklum kulda spáð um páskana

Kort/Veðurstofa Íslands

Langtímaspár gera ráð fyrir að um páskana verði norðanáttin ríkjandi með miklum kulda en þær spár eiga eftir að þróast þegar líður á vikuna. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

„Í dag verður ríkjandi norðanátt á landinu. Éljagangur og skafrenningur norðan og austan til fram yfir hádegi. Á Austfjörðum hvessir heldur af norðvestri síðar í dag og gæti veður þar verið byljótt fram á nótt.

Á morgun er útlit fyrir mun hægari breytilega átt og þurrviðri víðast hvar, svo snýst smám saman í vestanátt og hlýnar.

Á miðvikudag og fimmtudag er áfram útlit fyrir vestanátt og milt loft í kjölfar víðáttumikillar hæðar suður af landinu. Þá er líklegt að þokuloft eða súld geri vart við sig við vesturströndina en bjartviðri austan til. Langtímaspár gera svo ráð fyrir snúningi um páskana með norðanátt og miklum kulda, en þær spár eiga eftir að þróast þegar líður á vikuna,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. 

Veðurspáin fyrir daginn í dag og næstu daga

Norðan og norðvestan 8-15 í dag en 13-18 á Austfjörðum síðdegis. Él og skafrenningur á norðanverðu landinu fram eftir degi en bjartviðri á Suður- og Vesturlandi. Frost yfirleitt 0 til 5 stig.

Fer að lægja í kvöld. Norðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s. Stöku él við norðurströndina annars víða bjartviðri. Hiti breytist lítið.

Á þriðjudag:
Norðvestlæg eða breytileg átt 3-8 og víða léttskýjað en stöku él við norðurströndina og líkur á þokulofti vestan til. Hiti kringum frostmark síðdegis, annars 0 til 7 stiga frost.

Á miðvikudag:
Vaxandi vestanátt og þykknar upp, 10-18 m/s síðdegis með lítils háttar slyddu eða rigningu N- og V-lands. Hlýnandi veður.

Á fimmtudag (skírdag):
Vestan 5-13 m/s, skýjað og dálítil súld vestast, en léttskýjað á A-verðu landinu. Hiti 2 til 8 stig yfir daginn.

Á föstudag (föstudaginn langa):
Hvöss vestanátt og súld með köflum V-lands, en þurrt og bjart veður eystra. Hiti 5 til 10 stig.

Á laugardag:
Snýst í norðanátt 8-15 m/s með éljum N- og A-lands og ört kólnandi veðri. Talsvert frost um kvöldið.

Á sunnudag (páskadag):
Útlit fyrir norðanhvassviðri með éljum N- og A-lands en bjartviðri í öðrum landshlutum. Áfram talsvert frost.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert