„Ég finn alveg rosalega mikið traust“

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mikil greining og vinna fór fram í heilbrigðisráðuneytinu áður en reglugerð um sóttkvíarhótel, sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi ólöglega fyrr í vikunni, var gerð.

Þetta kom fram í máli Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra eftir ríkisstjórnarfund í morgun. 

Í Morgunblaðinu í dag kom fram að svo virðist sem enginn hafi leitt hugann sérstaklega að full­nægj­andi laga­stoð reglu­gerðar­á­kvæðanna eða meðal­hófs­reglu fyrr en degi fyr­ir rík­is­stjórn­ar­fund 30. mars, þar sem að öll­um lík­ind­um var tals­vert spurt um ein­mitt þau atriði.

„Við vinnum okkar vinnu vel í heilbrigðisráðuneytinu og höfum sett tugi reglugerða síðan þessi faraldur byrjaði. Við vinnum það á grundvelli greinargerða og gagna en líka á grundvelli funda í stærri og minni stíl. Það eru margir fundir á dag og hafa verið núna í 14 mánuði. Við undirbúum okkar ákvarðanir eins vel og nokkurs er kostur,“ segir ráðherra spurð um frétt Morgunblaðsins.

Ný reglugerð um til­hög­un sótt­kví­ar og heima­sótt­kví­ar tek­ur gildi á miðnætti. Í henni eru skýr­ari kröf­ur gerðar um skil­yrði fyr­ir heima­sótt­kví varðandi hús­næði og um­gengn­is­regl­ur. 

Íslendingar heppnir með sóttvarnalækni

Hún segist ekki finna fyrir minna trausti innan ríkisstjórnarinnar eða VG eftir dóm héraðsdóms í byrjun vikunnar.

„Ég finn alveg rosalega mikið traust,“ segir Svandís en hún segir enn fremur að Íslendingar séu mjög heppnir með sóttvarnalækni og að hann hafi sýnt ótrúlegt þolgæði í gegnum faraldurinn allan.

Núverandi samkomutakmarkanir gilda til 15. apríl og vonast margir eftir góðum fréttum varðandi afléttingar. Svandís segist aðspurð ekki geta sagt til um hvað verði í næstu viku en hins vegar séu alltaf einhverjar góðar fréttir í faraldrinum:

„Til að mynda var stærsti bólusetningadagurinn okkar í gær,“ segir Svandís en alls voru á sjötta þúsund bólusettir í gær. Hún segir bólusetningar halda áfram af krafti á næstu dögum og vikum en til að mynda er von á fyrsta skammti af bóluefni Janssen í næstu viku. Engar frekari fregnir eru af bóluefni Spútnik, annað en óformlegar viðræður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert