Hinsta eldhúsdagsræða Steingríms

Steingrímur J. Sigfússon kveður senn Alþingi eftir áralangan feril í …
Steingrímur J. Sigfússon kveður senn Alþingi eftir áralangan feril í stjórnmálum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, mun flytja ræðu í svokölluðum eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld. Verður það í síðasta skipti sem Steingrímur tekur þátt í þessum lið Alþingisumræðna en hann mun hætta á þingi að þessu kjörtímabili loknu. 

Árlegar eldhúsdagsumræður fara fram í kvöld á Alþingi og hefst útsending klukkan 19.30. 

Venju samkvæmt ríður fulltrúi stærsta stjórnarandstöðuflokksins, sem verður í kvöld Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, á vaðið og heldur fyrstu ræðu kvöldsins. Allir flokkar fá þrjá fulltrúa en Inga Sæland mun flytja tvær ræður þar sem hún og Guðmundur Ingi Kristinsson eru tvö í þingflokki.

Ræðumenn kvöldsins.
Ræðumenn kvöldsins. Samsett mynd

Enginn þingmaður stendur utan flokka í dag eftir að Andrés Ingi Jónsson gekk til liðs við Pírata og Rósa Björk Brynjólfsdóttir gekk í raðir Samfylkingarinnar. 

Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum: Miðflokkurinn, Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn og Flokkur fólksins.

Hefur hver þingflokkur átta mínútur í fyrstu umferð, fimm mínútur í annarri og fimm mínútur í síðustu umferð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert