Skora á stjórnvöld að klára veg um Dynjandisheiði

Dynjandisheiði um vetur.
Dynjandisheiði um vetur. mbl.is/Kristján Kristjánsson

Stjórn Vestfjarðastofu og sveitarstjórnir á norðan- og sunnanverðum Vestfjörðum hvetja Alþingi, ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála og Vegagerðina til þess að flýta framkvæmdum á Dynjandisheiði.

Í fréttatilkynningu þar um segir að vegakerfið á Vestfjörðum þoli ekki frekari tafir á þegar samþykktum vegaframkvæmdum.

Einnig segir að Dýrafjarðargöng nýtist ekki til fulls fyrr en vegur um Dynjandisheiði verði fullgerður frá Mjólká og ofan í Vatnsfjörð ásamt Bíldudalsvegi. Vegurinn kæmi í stað 70 ára gamals vegar sem ekki hefur notið fulls viðhalds, eins og segir í fréttatilkynningu.

„Heilsárstenging milli norðan- og sunnanverðra Vestfjarða skiptir miklu máli fyrir vaxandi atvinnulíf og samfélag á Vestfjörðum. Hér skipta máli mánuðir og ár og því mikilvægt að bjóða út næsta áfanga strax á þessu ári þar sem sú framkvæmd tekur 2-3 ár.

Auk heilsárstengingar innan Vestfjarða styttir Dynjandisheiðin ásamt framkvæmdum í Gufudalssveit leiðina Ísafjörður – Reykjavík um 50 km auk þess að skapa heilsárs hringleið um alla Vestfirði, Vestfjarðaleiðina, 950 km hring um Vestfirði, Dali og Strandir.

Æskilegt væri að bjóða út alla framkvæmdina í einu til að flýta framkvæmdum og ekki síður til að ná fram eins mikilli hagkvæmni og hægt er. Hvert útboð kostar tíma og peninga auk þess sem fyrirsjáanleiki hlýtur að vera æskilegur fyrir framkvæmdaaðila einnig,“ segir meðal annars í áðurnefndri fréttatilkynningu frá Vestfjarðastofu og sveitarfélögum á svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert