Hiti í kringum 25 gráður á Austurlandi um helgina

Búist er við að hlýjast verði á Norðaustur- og Austurlandi …
Búist er við að hlýjast verði á Norðaustur- og Austurlandi en hiti á Hallormsstöðum er nú í kringum 22 gráður. Ljósmynd/Bergrún Arna Þorsteinsdóttir

Íslendingar ættu að ferðast þangað sem þeir vilja um helgina að sögn Helgu Ívarsdóttur, veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands, en samkvæmt henni má búast við úrkomulitlu og flottu veðri víðast hvar á landinu.

Bjartast og hlýjast verður á Norðaustur- og Austurlandi en þar má búast við að hitinn verði á bilinu 20-25 gráður. Má einnig búast við svipuðu veðri austast á Suðausturlandi, þar sem sólin nær að skína.

Búist er við lítils háttar vætu vestan til á landinu í dag en gert er ráð fyrir að úrkomulítið verði á morgun og að mestu þurrt verði um helgina. Aðeins meiri líkur eru á rigningu á hálendinu en þar gætu komið síðdegis skúrir á stöku stað, sérstaklega á sunnudag.

Veðurvefur mbl.is

Hitaspáin kl. 12 á morgun.
Hitaspáin kl. 12 á morgun. Kort/Veðurstofa Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert