Ekkert plan B fyrir Þjóðhátíð

Stuðullinn á að af hátíðarhöldum verði hefur hækkað.
Stuðullinn á að af hátíðarhöldum verði hefur hækkað. mbl.is

„Það eru engar samkomutakmarkanir eins og staðan er í landinu núna, þannig að við erum bara að undirbúa það að halda Þjóðhátíð,“ segir Hörður Orri Grettisson, formaður þjóðhátíðarnefndar.

Hann segir ekkert plan B vera til staðar fyrir hátíðahöld ef gripið verður til aðgerða innanlands vegna kórónuveirunnar.

Alls greind­ust 56 smit kór­ónu­veirunn­ar inn­an­lands í gær. Þetta kem­ur fram í upp­færðum töl­um á covid.is. Átján voru í sótt­kví við grein­ingu. 38 voru utan sótt­kví­ar. 

Alls greind­ust 38 smit inn­an­lands í fyrra­dag og voru níu þeirra í sótt­kví við grein­ingu.

Óvissa með framhaldið

Spurður hvort eitthvað sé ljóst varðandi framhaldið segir Hörður að þjóðhátíðarnefnd hafi í rauninni ekki grænan grun um það. „Við höfum ekkert verið látin vita þótt við séum alveg í samtali við sóttvarnayfirvöld.“

Eins og fyrr segir heldur nefndin þó áfram skipulagningu hátíðarinnar.

Stuðullinn á að af hátíðahöldum verði hefur hækkað

Boðið hefur verið upp á veðmál sem Coolbet.is stendur fyrir, varðandi það hvort af hátíðinni verði eður ei.

„Stuðullinn á að Þjóðhátíð fari fram hækkar bara og hækkar, hvað heldur þú að gerist eftir tölur dagsins?“ spyr veðmálasíðan Cool­bet í færslu á Twitter.

Stuðull­inn fyr­ir þjóðhátíðar­höld í ár var í gær 1,33, en stuðull­inn fyr­ir að Þjóðhátíð fari ekki fram sök­um veirunn­ar 3,05.

Stuðullinn á að af hátíðinni verði hefur hækkað síðan í gær og er núna 1.44 og stuðullinn á að af hátíðinni verði ekki lækkað eða 2.50.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert