Óbólusett fólk velkomið

Frá bólusetningu gegn Covid-19 í Laugardalshöll. Nú fer bólusetning á …
Frá bólusetningu gegn Covid-19 í Laugardalshöll. Nú fer bólusetning á höfuðborgarsvæðinu fram á Suðurlandsbraut 34. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ýmislegt er í boði í bólusetningu gegn Covid-19 á Suðurlandsbraut 34 í Reykjavík alla virku dagana í þessari og næstu viku á milli 10.00 og 15.00. Öll óbólusett og hálfbólusett, 12 ára og eldri, sem eru með íslenska kennitölu geta komið í bólusetningu á þessum tíma.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Bóluefni allra bóluefnaframleiðenda sem hafa fengið markaðsleyfi hér á landi standa fólki til boða. 

Bóluefnin Pfizer, Moderna og Jansen eru notuð alla virka daga en bóluefnið AstraZeneca er eingöngu í boði á föstudögum,“ segir í tilkynningu heilsugæslunnar.

Fólk sem er ekki með íslenska kennitölu getur skráð sig

Þá er örvunarskammtur í boði fyrir þá sem fengu bóluefni Janssen fyrir að minnsta kosti 28 dögum síðan. Slíkir skammtar eru einnig í boði fyrir fólk sem er 60 ára og eldra ef sex mánuðir eru liðnir frá seinni bólusetningu.

Bólusetningadagar fyrir þennan hóp verða líka auglýstir reglulega.

Börn á aldrinum 12 til 15 ára þurfa að vera í fylgd með forráðamanni. 

Einstaklingur án íslenskrar kennitölu má ekki mæta í bólusetningu fyrr en staðfesting á skráningu í bólusetningarkerfið hefur borist. Slík skráning fer þannig fram að einstaklingar sem ekki hafa íslenska kennitölu senda tölvupóst á bolusetning@heilsugaeslan.is.

Fram þarf að koma: Nafn, fæðingardagur og ár, kyn, upprunaland, netfang og helst íslenskt GSM símanúmer til að taka við SMS boði. Ef einstaklingur er hálfbólusettur þurfa upplýsingar um bóluefni og tímasetningu að fylgja.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert