Fella niður kröfu um veirupróf við komuna

Frá Leifsstöð.
Frá Leifsstöð. mbl.is/Kristinn Magnússon

Felld verður niður krafa um að einstaklingar með tengsl við Ísland þurfi að framvísa neikvæðu kórónuveiruprófi við komu til landsins, frá og með föstudeginum 1. október.

Frá þessu greinir heilbrigðisráðuneytið í tilkynningu.

Sem fyrr þurfi þeir þó að fara í sýnatöku eftir komu til landsins, að undanskildum börnum sem fædd eru 2005 og síðar.

Tekið er fram í tilkynningunni að heilbrigðisráðherra hafi ákveðið þetta í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Gert sé ráð fyrir að reglurnar gildi til 6. nóvember næstkomandi.

Við Leifsstöð.
Við Leifsstöð. mbl.is/Kristinn Magnússon

Virkar landamæravarnir forsenda

Í minnisblaðinu komi fram að daglegum smitum innanlands hafi fækkað frá því að aðgerðir innanlands og á landamærum voru hertar í júlí og ágúst og innlögnum á sjúkrahús sömuleiðis.

„Hann segir ljóst að smit halda áfram að berast til landsins og að raðgreiningar Íslenskrar erfðagreiningar sýni að smit frá fáum einstaklingum, bólusettum og óbólusettum, dugi til að setja af stað útbreiddan faraldur innanlands,“ segir í tilkynningunni um minnisblaðið.

Í ljósi reynslunnar undanfarið telji hann ráðlegt að lágmarka dreifingu veirunnar með takmörkunum á landamærum. Virkar landamæravarnir séu forsenda þess að hægt verði að slaka að mestu á takmörkunum innanlands. 

Breytingarnar:

  • Farþegar með tengsl við Ísland þurfa ekki lengur að sýna vottorð um neikvætt Covid-próf á landamærunum en sæta sýnatöku við komuna til landsins, hvort sem þeir eru bólusettir eða ekki. Óbólusettir farþegar þurfa sem fyrr að sýnatöku lokinni að sæta fimm daga sóttkví og fara í PCR-próf við lok sóttkvíar.
  • Bólusettir farþegar án tengsla við Ísland þurfa sem fyrr að framvísa vottorði um neikvætt Covid-próf sem er ekki eldra en 72 klukkustunda í stað sýnatöku við komuna til landsins. Séu þeir óbólusettir þurfa þeir að auki að sæta tvöfaldri sýnatöku með fimm daga sóttkví á milli.
  • Áfram gilda sömu reglur um bólusetta og um þá sem hafa vottorð um fyrri sýkingu.
  • Börn fædd 2005 eða síðar og tengifarþegar sem ekki fara út fyrir landamærastöð sæta engum takmörkunum vegna sóttvarna á landamærum.

Minnt er á að ferðamönnum er skylt að forskrá sig fyrir komuna til landsins á vefnum Covid.is.

Hætt verði að viðurkenna mótefnamælingar

Í minnisblaði sóttvarnalæknis er tillaga um að hætt verði að viðurkenna mótefnamælingar gegn veirunni sem staðfestingu um afstaðna sýkingu af völdum Covid-19.

„Ráðherra hefur ákveðið að skoða þá tillögu nánar og afla frekari upplýsinga áður en endanleg ákvörðun þar að lútandi verður tekin.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert