„Algjörlega óboðlegt og á ekki að líðast“

Ferjan Baldur fyrir utan bryggjuna í Stykkishólmi. Þyrla Landhelgisgæslunnar er …
Ferjan Baldur fyrir utan bryggjuna í Stykkishólmi. Þyrla Landhelgisgæslunnar er vinstra megin við ferjuna. mbl.is/Gunnlaugur Árnason

Enn og aftur berast fréttir af bilun í Breiðafjarðarferjunni Baldri með yfir hundrað manns um borð. Margoft hefur verið bent á það öryggisleysi sem fylgir því að vera með gamalt skip í siglingum yfir Breiðafjörð sem hefur ítrekað bilað. 

Þannig hefst sameiginleg yfirlýsing frá bæjarstjórn Vesturbyggðar og sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps varðandi Breiðafjarðarferjuna Baldur sem varð vélarvana skammt fyr­ir utan Stykk­is­hólm í morgun.

Um borð eru 102 farþegar auk áhafnar en þyrla Landhelgisgæslunnar auk björgunarsveitar á Snæfellsnesi voru kallaðar út. Gunn­laugur Grett­is­son­, fram­kvæmda­stjóri Sæ­ferða, sagði í samtali við mbl.is að stefnt sé að því að sigla Baldri aftur til Stykkishólms.

Að leggja líf fólks í hættu við að sigla með þessu skipi er algjörlega óboðlegt og á ekki að líðast með nokkru móti,“ segir í yfirlýsingunni. Bent er á að sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps og bæjarstjórn Vesturbyggðar hafi ítrekað sent frá sér yfirlýsingar um ónægju sína með ástand mála, átt marga fundi með forsvarsmönnum Vegagerðarinnar og rætt við samgönguyfirvöld um úrbætur en enn bilar Baldur.

Nú er nóg komið og stjórnvöld verða að bregðast við með tafarlausum úrbótum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert