Skjálfti yfir þremur að stærð

Stærsti skjálftinn varð úti á sjó, um 80 km frá …
Stærsti skjálftinn varð úti á sjó, um 80 km frá Reykjanestá. Kort/Veðurstofa Íslands

Fjórir jarðskjálftar urðu um 80 kílómetrum frá Reykjanestá laust fyrir klukkan tvö í nótt. Sá stærsti mældist 3,1 að stærð.

Að sögn Lovísu Mjallar Guðmundsdóttur, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands, er um hefðbundna virkni að ræða. Mjög reglulega verði þarna skjálftar yfir 3 að stærð.

„Þetta eru flekaskil og það er mjög eðlilegt að það komi skjálftar þarna inni á milli,“ segir Lovísa Mjöll.

Spurð út Meradali, þar sem núna er hætt að gjósa, segir hún allt vera með kyrrum kjörum og engan óróa í gangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert