Vilja opinberan frídag á fullveldisdaginn

Alls voru samþykktar 14 ályktanir.
Alls voru samþykktar 14 ályktanir. Ljósmynd/ SUF

Fjórtán ályktanir voru samþykktar á sambandsþingi Sambands ungra framsóknarmanna, sem fram fór í Kópavogi um helgina. Unnur Þöll Benediktsdóttir var endurkjörin sem formaður.

Ungir framsóknarmenn vilja sjá hærri fæðingarstyrk til námsmanna, aukið fjármagn til forvarna gegn sjálfsvígum og lækkun fasteignaskatta, svo eitthvað sé nefnt. 

Þá vilja þeir einnig bæta fleiri dögum í hóp opinberra frídaga, meðal annars fullveldisdaginn, 1. desember.

Ráðherrar og oddvitar litu við

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, leit við á þinginu, en það gerði einnig Ásmundur Einar Daðason, ritari flokksins og barna- og menntamálaráðherra,  og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. 

Fram fór oddvitapallborð, þar sem oddvitar Framsóknarflokksins í suðvesturkjördæmi, þau Brynja Dan Gunnarsdóttir, Halla Karen kristjánsdóttir, Valdimar Víðisson og Orri Hlöðversson, sátu fyrir svörum þinggesta.

Þingforseti var Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður suðvesturkjördæmis. Lilja Rannveig og Hafdís Hrönn, þingmenn Framsóknarflokksins létu sig ekki vanta.

Mismuna ekki eftir búsetu

Ný stjórn og varastjórn var kosin á þinginu. „Saman standa þær af 24 ungum einstaklingum alls staðar að af landinu, en ung Framsókn leggur mikið upp úr því að mismuna ekki eftir búsetu þegar kemur að þátttöku í stjórnmálastarfi,“ segir í tilkynningu frá SUF. 

Nýja stjórn skipa:

Diana Íva Gunnarsdóttir (S)

Hrafn Splidt Þorvaldsson (S)

Bjarney Anna Þórsdóttir (NA)

Gunnar Ásgrímsson (NV)

Mikael Jens Halldórsson (NV)

Sæþór Már Hinriksson (NV)

Hafdís Lára Halldórsdóttir (NV)

Inga Berta Bergsdóttir (NV)

Berglind Sunna Bragadóttir (RVK)

Davíð Freyr Peters (SV)

Urður Björg Gísladóttir (SV)

Heiðdís Geirsdóttir (SV)

 

Nýja Varastjórn skipa: 

Ágúst Guðjónsson (RVK)

Eggert Thorberg (RVK)

Einar Gauti Jóhannsson (SV )

Hlynur Smári (SV)

Jóhann Frímann Arinbjarnarson (NA)

Alexander Olsen (SV)

Davíð Fannar Sigurðsson (SV)

Kristín Kjartansdóttir (NA)

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (NV)

Kolbrá Lóa Ágústsdóttir (S)

Kristín Hermannsdóttir (SV)

Þórdís Eva Rúnarsdóttir (NV)

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert