Svandís veitir undanþágu

Svandís Svavarsdóttir.
Svandís Svavarsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Að fenginni umsögn Matvælastofnunar hefur Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra veitt undanþágu frá reglugerð um hámarks innihald kadmíum í fosfór í innfluttum áburði.

Undanþágan er veitt vegna ástandsins á evrópskum áburðarmörkuðum sem sköpuðust í kjölfar viðskiptaþvingana gagnvart Rússlandi. Sökum þeirra hefur lokast fyrir stóran hluta framboðs á áburði sem inniheldur fosfór með lágu kadmíum innihaldi. Ljóst þykir miðað við stöðu heimsmála að Rússlandsmarkaður verði lokaður til lengri tíma, og að ekki fáist áburður þaðan á meðan, að því er ráðuneytið greinir frá í tilkynningu. 

Í mati Matvælastofnunar kom fram að hættulítið sé að hækka tímabundið leyfileg mörk kadmíums í fosfórblönduðum áburði hérlendis.

Í matinu kemur einnig fram að fosfór sé eitt mikilvægasta plöntunæringarefnið í áburði og því nauðsynlegt fyrir íslenskan landbúnað. Þetta næringarefni sé auk þess þegar fyrir hendi í þeim áburði sem notaður er hér á landi.

Reglugerðarbreytinguna má sjá hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert