Lýsa yfir óvissustigi fyrir norðan

Grímsey.
Grímsey. mbl.is/Sigurður Bogi

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu úti fyrir Norðurlandi.

Jarðskjálftahrina stendur yfir austan við Grímsey og hafa mælst um 2.600 jarðskjálftar frá því að skjálfti að stærð 4,9 reið yfir í gær 8. september.  Umrætt svæði er þekkt jarðskjálftasvæði og var svipuð hrina í gangi á svæðinu 2018, að því er segir í tilkynningu frá almannavörnum. 

„Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila,“ segir ennfremur.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hvetja fólk sem býr á þekktum jarðskjálftasvæðum til þess að gera viðeigandi ráðstafanir vegna jarðskjálfta.

Á heimasíðu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra (www.almannavarnir.is) má nálgast upplýsingar um ýmsar varnir til að draga úr tjóni og/eða slysum í jarðskjálfta, bæði á heimilum og vinnustöðum, sjá hér https://www.almannavarnir.is/natturuva/jardskjalftar/varnir-gegn-jardskjalfta/

Á vef Veðurstofunnar er hægt að senda inn tilkynningar, hafi fólk fundið fyrir jarðskjálfta og sjá yfirlit yfir jarðskjálfta síðustu 48 klst. www.vedur.is, að því er almannavarnir nefna í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert