Carlsen lentur og teflir á þriðjudag

Magnus Carlsen á Keflavíkurflugvelli.
Magnus Carlsen á Keflavíkurflugvelli. Ljósmynd/Þorsteinn Magnússon

Margir af bestu skákmönnum heims etja kappi á heimsmeistaramótinu í Fischer-slembiskák, þar á meðal Magnus Carlsen, heimsmeistarinn í skák, sem lenti í Keflavík í kvöld. 

Mótið hefst á Hótel Natura á þriðjudag og verður haldið í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá einvígi Fischers og Spasskís. Um fjörutíu manns starfa í sjálfboðavinnu við mótið, sem verður opið áhorfendum.

Meðal keppenda verður Wesley So, heimsmeistari í Fischer-slembiskák, og ofurstórmeistarar á borð við Ian Nepomniachtchi og Hikaru Nakamura, auk úsbeska ungstirnisins Nodirbek Abdusattorov. Verða kapparnir á opnunarhátíð mótsins á Hótel Natura á morgun.

Leitað á öllum keppendum

Leikar hefjast klukkan þrjú á þriðjudag og fer enginn tómhentur heim af mótinu. Um sextíu milljóna króna verðlaunafé er í húfi en sigurvegari fær 21 milljón króna í sinn hlut.

Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands, segir áhorfendur velkomna á mótið sem stendur frá þriðjudeginum fram á sunnudag, frá klukkan þrjú til átta.

Spurður um eftirlit á mótsstað í ljósi umræðunnar um svindl innan skákheimsins segir Gunnar: „Það verður leitað á öllum sem koma inn á mótsstað með málmleitartækjum. Menn þurfa að skilja eftir síma og snjallúr.“

Búist er við miklum hasar enda verða tímamörkin styttri en í kappskák; 25 mínútur fyrstu 35 leikina en fimm mínútum verður bætt við í 36. leik.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert