Ók bíl og horfði á sjónvarpsþátt

Ökumaður var einn á ferð og var að horfa á …
Ökumaður var einn á ferð og var að horfa á sjónvarpsþátt í símanum á meðan hann ók um göturnar. Ljósmynd/Lögreglan

Við héldum að við hefðum séð allt, en svo er víst ekki en vonandi fer þetta að tæmast.“ Svo hefst Facebook-færsla lögreglunnar á Suðurnesjum en hún hafði afskipti af manni sem horfði á sjónvarpsþátt á meðan hann var að keyra. 

Í gærkvöldi veitti lögreglan bifreið athygli sem ekið var um umdæmið og rásaði bifreiðin ansi mikið á veginum.

Lögreglunni grunaði að ökumaðurinn væri að aka undir áhrifum áfengis, en svo var ekki raunin.

Fékk 40 þúsund króna sekt

Ökumaður var einn á ferð og var að horfa á sjónvarpsþátt í símanum á meðan hann ók um göturnar.

„Honum var gerð grein fyrir því að þetta væri óheimilt og fékk þessi ökumaður föðurlegt tiltal og ábendingu um að gera þetta ekki aftur.“

Þá fékk ökumaðurinn sekt upp á 40.000 krónur fyrir notkun farsíma við aksturinn.

„Já kæru vegfarendur það er ekki í lagi að aka bifreið og horfa á sjónvarpsþátt í símanum á meðan og í raun afar einkennilegt að þurfa að minna á þetta,“ segir í færslunni.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert