Hvalveiðar

Japanar og Bandaríkjamenn í hár saman vegna hvalveiða

Langreyður skorin í Hvalstöðinni í Hvalfirði.

Hörð gagnrýni á ráðherra

12.8. Stjórnarþingmenn gagnrýndu störf Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, harðlega á sameiginlegum fundi utanríkismála-, sjávarútvegs- og landbúnaðar- og umhverfisnefndar í gærmorgun. Meira »

Heimdallur fagnar hvalveiðum

Fyrstu hvalir þessarar vertíðar voru dregnir á land í Hvalstöðinni í Hvalfirði í vikunni
1.7.2010 Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, telur það fagnaðarefni að hvalveiðar séu hafnar á þessu ári. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn félagsins hefur sent frá sér til fjölmiðla. Meira »

„Hvalir eru eins og hver annar fiskur"

24.6.2010 Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, er meðal þeirra fjölmörgu sem eru staddir í Agadir í Marokkó þar sem ársfundur Alþjóða hvalveiðiráðsins stendur yfir. Hefur AFP fréttastofan eftir Kristjáni að hann sjái ekki muninn á hvalveiðum og öðrum fiskveiðum. „Hvalir eru eins og hver annar fiskur". Meira »

Formaður Alþjóðahvalveiðiráðsins mætir ekki

14.6.2010 Stjórnarformaður Alþjóðahvalveiðiráðsins, Christian Maquieira, mun ekki mæta á ársfund ráðsins vegna veikinda. Er þetta talið geta haft áhrif á framgang tillögu sem hann kynnti í apríl um að heimila eigi hvalveiðar í atvinnuskyni með ákveðnum takmörkunum. Meira »

Ástralar stefna Japönum vegna hvalveiða

Japanskt hvalveiðiskip í Suðurhöfum.
28.5.2010 Áströlsk stjórnvöld munu í næstu viku hefja málarekstur gegn Japönum fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag vegna hvalveiða Japana í Suðurhöfum. Peter Garrett, umhverfisráðherra Ástrala, segir að stjórnvöld vilji binda enda á hvalaslátrun í nafni vísinda í Suðurhöfum. Meira »

Hamla ekki veiðum í sumar

Frá hvalskurði í Hvalfirði.
12.5.2010 Sjávarútvegsráðuneytið mun leggja til við sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis að fyrirhugaðar lagabreytingar á hvalveiðum stofni ekki vertíðinni næsta sumar í óvissu. Meira »

Tillögur Alþjóðahvalveiðiráðsins út í hött

Hvalveiðiskip Hvals hf. í Reykjavíkurhöfn.
24.4.2010 Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals, segir að málamiðlunartillögur Alþjóðahvalveiðiráðsins komi ekki á óvart. „Þetta er kjaftshögg, það er ekki að spyrja að því, en þessar tillögur skipta bara engu máli,“ segir hann og bætir við að þær verði aldrei samþykktar á ársfundi ráðsins. Meira »

Hrefnuveiðar að hefjast

Dröfn RE að veiðum.
21.4.2010 Gert er ráð fyrir að hrefnuveiðibáturinn Dröfn RE haldi til veiða síðar í dag en báturinn fór út í gær til að prófa byssur og annan búnað. Félag hrefnuveiðimanna hefur keypt 100 tonna bát og er verið að búa hann til veiða. Meira »

Hvalveiðunum er lokið í ár

Hvalur 9 á leið í land með langreyðar á síðunni.
25.9.2009 Hvalbátarnir tveir komu til Hvalfjarðar í gærmorgun með tvo hvali hvor og voru það síðustu hvalirnir á þessari vertíð. Alls veiddust 125 langreyðar á vertíðinni af þeim 150 hvala kvóta, sem Hvalur hf. fékk úthlutað. Meira »

Ástralar hóta Japönum lögsókn vegna hvalveiða

Nisshin Maru, móðurskip japanska hrefnuveiðiflotans.
20.6.2009 Áströlsk stjórnvöld hótuðu í gær Japönum lögsókn ef þeir hætta ekki umdeildum vísindaveiðum á hval í Suðurhöfum. Stephen Smith, utanríkisráðherra Ástralíu, sagði að málshöfðun væri enn möguleg ef Japanir létu ekki undan kröfum um að hætta veiðunum. Meira »

Grænlendingar vilja veiða hnúfubaka

Hnúfubökum hefur fjölgað á ný við Ísland.
17.6.2009 Umhverfisverndarsinnar gagnrýna harðlega tillögu, sem Danir leggja fram á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins á Madeira í næstu viku um að Grænlendingar fái að veiða 50 hnúfubaka á fimm ára tímabili. Hnúfubakur hefur verið alfriðaður undanfarna áratugi. Meira »

Búið að veiða tvær hrefnur

Hrefnubáturinn Jóhanna ÁR fór í sína fyrstu hrefnuveiðiferð frá Njarðvík í gær.
27.5.2009 Önnur hrefna veiddist í morgun en sú fyrri veiddist í gærkvöldi. Eru það bátsverjar á Jóhönnu ÁR sem veiddu bæði dýrin en báturinn hóf hrefnuveiðar í gær. Er ætlunin að reyna að ná þriðja dýrinu í dag áður en aflanum verður landað síðar í dag. Hrefnan sem veiddist í morgun reyndist vera sjö metra langur tarfur. Meira »

Mótmæla hvalveiðum í London

Uppblásinn hvalur verður með í för í mótmælunum.
26.5.2009 Umhverfisverndarsamtök efna til mótmæla gegn hvalveiðum framan við sendiráð Íslands í London í dag. Fram kemur í tilkynningu að fólk sé að safnast saman með uppblásna hrefnu í fullri stærð utan við sendiráðið og þar verði afhent mótmæli gegn hvalveiðum Íslendinga. Meira »

Gagnrýna undanlátssemi gagnvart hvalveiðum

Til stendur að veiða allt að 150 langreyðar hér við land í sumar.
21.5.2009 Fráfarandi formaður Alþjóðahvalveiðiráðsins sætti gagnrýni á Bandaríkjaþingi í gærkvöldi fyrir að gefa of mikið eftir í viðræðum við Japana. Reynt hefur verið undanfarið ár að ná samkomulagi innan hvalveiðiráðsins milli hvalveiðiþjóða og hinna sem eru andvígar veiðum en það hefur ekki tekist. Meira »

Engin sátt í hvalveiðiráðinu

Japönsk hrefnuveiðiskip.
11.5.2009 Tilraunir til að ná sáttum í Alþjóðahvalveiðiráðinu milli hvalveiðiþjóða og andstæðinga hvalveiða virðast hafa farið út um þúfur. Segir breska ríkisútvarpið BBC, að engar líkur séu á því, að slíkt samkomulag náist á fundi hvalveiðiráðsins á Madeira í júní. Meira »
Hrefna á dekkinu.

Yfir 30 hrefnur á land

1.7.2010 Hvalveiðibáturinn Hrafnreyður KÓ kom inn með þrjú dýr í morgun og landaði við Kópavogshöfn. Dýrin voru allt tarfar, um átta metrar að lengd hvert þeirra. Á vef hrefnuveiðimanna kemur fram að þann 29. júní hafi Hrafnreyður verið komin með þrjátíu hrefnur á land. Meira »

Óheppilegt að ekki náðist niðurstaða

26.6.2010 Aðstoðar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Japans, Yasue Funayama, segir óheppilegt að ekki náðist sameiginleg niðurstaða á ársfundi Alþjóða hvalveiðiráðsins um að heimila hvalveiðar í atvinnuskyni. Segir hún í viðtali við BBC að Japanir hafi þurft að ganga að ýmsum afarkostum til þess að tryggja tillögunni brautargengi án árangurs. Meira »

Árni Þór að hugsa um ESB

Árni Þór Sigurðsson.
16.6.2010 „Ef formaður utanríkismálanefndar [Árni Þór Sigurðsson] er þeirrar skoðunar að hvalveiðar Íslendinga séu til vandræða í aðildarviðræðum við ESB þá á hann bara að segja það berum orðum.“ Meira »

PETA: Obama styður hvalveiðar

9.6.2010 Alþjóðahvalveiðiráðið mun funda í Marokkó þann 20. júní og samkvæmt vef dýraverndunarsamtakanna PETA verða þar greidd atkvæði um hvort aflétta eigi hvalveiðibanninu sem gilt hefur í 24 ár. Segir PETA að ríkisstjórn Baracks Obama Bandaríkjaforseta styðji þá hugmynd að aflétta banninu. Meira »

Hafa áhyggjur af hvalveiðimálum

Hvalveiðiskip Hvals hf. í Reykjavíkurhöfn.
20.5.2010 Bæjarstjórn Akraness samþykkti í gær ályktun þar sem lýst er miklum áhyggjum af þeirri stöðu sem upp sé komin vegna hvalveiðimála. Komið hafi fram, að forráðamenn Hvals hf. sjái öll tormerki á að skipuleggja veiðar og vinnslu í sumar vegna framkomins frumvarps um hvalveiðar sem liggur fyrir Alþingi. Meira »

Japanar hafna hvalveiðitillögu

Japanskt hvalveiðiskip.
26.4.2010 Japönsk stjórnvöld hafa hafnað málamiðlunartillögu um hvalveiðar, sem formaður og varaformaður Alþjóðahvalveiðiráðsins lögðu fram í síðustu viku. Í tillögunni er gert ráð fyrir að Japanar dragi verulega úr veiðum í Suðurhöfum en fái þess í stað atvinnukvóta þar og í Kyrrahafi. Meira »

Nýsjálendingar styðja ekki hvalveiðitillögu

Japanskt hvalveiðiskip.
23.4.2010 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands segir að þarlend stjórnvöld geti ekki stutt málamiðlunartillögu, sem formaður og varaformaður Alþjóðahvalveiðiráðsins hafa lagt fram með það að markmiði að binda enda á áratugalangar deilur innan ráðsins um hvalveiðar. Meira »

Hverfandi líkur á samkomulagi um hvalveiðar

Hvalur 9 siglir í átt að landi með tvær langreyðar á stjórnborðshliðinni.
16.4.2010 „Ekkert miðaði í samkomulagsátt á lokafundi tólf ríkja hópsins og óhætt er að fullyrða að hvalveiðiríkin og ríki andstæð hvalveiðum hafi fjarlægst fremur en hitt.“ Meira »

Norskar hrefnuveiðar stöðvaðar

Hrefna dregin um borð í hrefnuveiðibát.
23.6.2009 Norsku sjávarútvegssamtökin Råfisklaget tilkynnt í dag, að hrefnuveiðar á vegum samtakanna yrðu stöðvaðar klukkan 13 að íslenskum tíma í dag. Ástæðan er væntanlega birgðasöfnun en samtökun stöðvuðu einnig hrefnuveiðar í júní í fyrra. Meira »

Skynjar aukinn skilning

18.6.2009 „Reynslan hefur kennt okkur að það skilar yfirleitt litlum árangri að skammast í þjóðum eða ráðamönnum með vísifingurinn á lofti. Árangursríkasta leiðin til að tryggja dýravernd er að koma á samræðum, auka skilning manna á málefninu og bjóða heimamönnum aðstoð við að breyta högum sínum,“ segir Robbie Marsland, yfirmaður IFAW (International Fund for Animal Welfare) í London. Meira »

Segja hrefnur veiddar nálægt hvalaskoðunarslóð

Jóhanna ÁR með hrefnu á síðunni.
4.6.2009 Þrjár hrefnur veiddust í Faxaflóa í gær og hafa þá samtals veiðst sjö dýr frá því veiðar hófust í maí. Á heimasíðu Félags hrefnuveiðimanna segir, að bátsmenn á Jóhönnu ÁR hafi verið við veiðar mjög utarlega í Faxaflóanum í gær. Þessu mótmæla Hvalaskoðunarsamtök Íslands og segja að í hvalaskoðunarferð síðdegis í gær hafi sést til Jóhönnu að veiðum í um 16 mílna fjarlægð frá Reykjavík nálægt hefðbundinni hvalaskoðunarslóð. Meira »

Haldið á hrefnuveiðar

Landfestar Jóhönnu ÁR leystar í Njarðvíkurhöfn undir hádegið.
26.5.2009 Hrefnuveiðimenn á Jóhönnu ÁR 206 leystu landfestar um hádegisbilið en Jóhanna er fyrsti hvalveiðibáturinn sem fer til hrefnuveiða í sumar. Tveir aðrir bátar munu einnig veiða hrefnu í sumar en heimilt er að veiða eitt hundrað hrefnur á veiðitímabilinu. Meira »

Hrefnuveiðar að hefjast

24.5.2009 Á þriðjudag mun Jóhanna ÁR fara frá Njarðvíkurhöfn til veiða á hrefnu í fyrsta skipti. Verið er að mála bátinn og gera kláran fyrir tímabilið. Hrefnuveiðimenn hafa fengið þrjú leyfi til veiða í sumar og kvótinn er 100 hrefnur, að því er fram kemur á vef hrefnuveiðimanna. Meira »

Brosnan berst gegn hvalveiðum

Pierce Brosnan við Hvíta húsið í gær.
20.5.2009 Írski leikarinn Pierce Brosnan heimsótti Hvíta húsið í Washington í gær og notaði tækifærið til að hvetja Bandaríkjastjórn til að hefja viðræður við Íslendinga, Norðmenn og Japana um hvalveiðar. Meira »

Hvalkjötvinnslan til Esju

Njörður á hrefnuveiðum.
5.5.2009 „Kjötvinnslan Esja mun annast alla vinnslu og pökkun. Það verður ekkert af því að við komum okkur upp aðstöðu til þess á Akranesi eins og til stóð. Lánveitendur kipptu að sér höndunum þegar sjávarútvegsráðherra lýsti yfir að ákvörðun um hvalveiðar gilti einungis til eins árs,“ segir Gunnar Bergmann Jónsson, framkvæmdastjóri Félags hrefnuveiðimanna. Hann segir rúmar tvær vikur í að veiðar geti hafist. Meira »
[ Fyrri síða | Næsta síða » ]

finnur.is