Dagur efstur eftir að öll kjörfundaratkvæði hafa verið talin

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Dagur B. Eggertsson og Stefán Jón Hafstein, svöruðu spurningum fréttamanna eftir að ...

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Dagur B. Eggertsson og Stefán Jón Hafstein, svöruðu spurningum fréttamanna eftir að fyrstu tölur voru birtar Ómar Óskarsson

Dagur B. Eggertsson er með 4.073 atkvæði í fyrsta sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar þegar öll kjörfundaratkvæði hafa verið talin, eða 8.596 atkvæði. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri er í öðru sæti með 4.600 atkvæði í fyrsta til annað sætið og Stefán Jón Hafstein er með 4.710 atkvæði í fyrsta til þriðja sæti lista á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor.

Björk Vilhelmsdóttir er í fjórða sæti listans með 3.623 atkvæði og Oddný Sturludóttir er með 3.697 atkvæði í fyrsta til fimmta sæti listans. Auðir og ógildir voru 36.

Það er því ljóst að Dagur mun leiða lista Samfylkingarinnar í vor.

1. Dagur Bergþóruson Eggertsson 4073 atkvæði

2. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, 4600 atkvæði

3. Stefán Jón Hafstein, 4710 atkvæði

4. Björk Vilhelmsdóttir, 3623 atkvæði

5. Oddný Sturludóttir, 3693 atkvæði

6. Sigrún Elsa Smáradóttir

7. Dorfi Hermannsson

8. Stefán Jóhann Stefánsson

9. Stefán Benediktsson

10. Guðrún Erla Geirsdóttir

Í frétt á vef Samfylkingarinnar kemur fram að kjörsókn í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík fór fram úr björtustu vonum Samfylkingarfólks. Til samanburðar tóku um átta þúsund kjósendur þátt í sameinuðu prófkjöri fjögurra flokka í Reykjavík árið 1998 en þessir flokkar voru Kvennalistinn, Alþýðuflokkurinn, Alþýðubandalagið og Þjóðvaki. Í prófkjörinu nú tóku á tíunda þúsund manns þátt í þessu fyrsta sjálfstæða prófkjöri Samfylkingarinnar vegna borgarstjórnarkosninga í Reykjavík.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is