Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 27.5.2006
| 21:27
| Uppfært
21:45
Kjörsókn í Reykjavík 64% klukkan 21
Klukkan 21 höfðu 54.863 greitt atkvæði á kjörstað í Reykjavík sem er 64,08% kjörsókn. Er þetta töluvert minna en á sama tíma fyrir fjórum árum en þá var kjörsókn 72,08% en mun fleiri greiddu atkvæði utan kjörstaðar nú en þá. Í Kópavogi höfðu 12.824 greitt atkvæði klukkan 21 eða 66,3% en kjörsókn var 69,6% á sama tíma árið 2002. Í Hafnarfirði höfðu 10.091 manns greitt atkvæði klukkan 21 eða 63,2%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






