Einar Oddur gefur kost á sér

Einar Oddur Kristjánsson

Einar Oddur Kristjánsson

Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi segir að það hafi aldrei staðið annað til en að bjóða sig fram aftur til Alþingis, en kosið verður í vor. Einar segir að kjördæmisþingið sem kemur saman 7. október taki ákvörðun hvernig staðið verði að uppstillingu á listann og segist hann ekki hafa sérstakar meiningar um hvaða aðferð verði beitt.

Á fréttavefnum Bæjarins besta kemur fram að Einar, sem var formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum til fjölda ára, segir að það sé ekki öfundsvert starf að stilla upp lista enda hafi hann tekið þátt í að stilla upp einum sex listum í Vestfjarðakjördæminu gamla.

Aðspurður um næstu skref í vegagerð á Vestfjörðum segir Einar, sem er starfandi formaður fjárlaganefndar, að það skýrist í haust þegar fjárlög verða tilbúinn. „Ég á ekki von á öðru en að það verði nein töf á mikilvægustu framkvæmdum í vegagerð á Vestfjörðum.“ Hann stendur fast á því að um mikilvægar aðgerðir sé að ræða, útlitið var orðið dökkt og hættan orðin á langvarandi víxlverkun launahækkana og verðbólgu. „Við bjuggum við óþolandi ástand í efnahagsmálum frá 1971 til 1991 og ég held að ekki nokkur maður vilji sigla aftur inn í þann tíma“, segir Einar Oddur Kristjánsson, á kafi í gróðursetningu á Sólbakka í Önundarfirði, að því er segir á vef Bæjarins besta.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is