Kosið á milli tveggja kosta við uppstillingu á lista í NV-kjördæmi

Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi hefur ákveðið að leggja það til við kjördæmisþing, sem haldið verður á Ísafirði um helgina, að kosið verði milli tveggja kosta við uppstillingu á framboðslista flokksins í kjördæminu. Björn Bjarki Þorsteinsson framkvæmdastjóri flokksins í kjördæminu staðfesti þetta í samtali við Skessuhorn.

Að undanförnu hefur talsverð umræða farið fram meðal flokksmanna í kjördæminu og um tíma virtist sem sátt væri um að uppstillingarleiðin yrði farin en nú er ljóst að svo er ekki.

Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns er mest fylgi við prófkjörsleiðina í sitt hvorum enda kjördæmisins en á Vestfjörðum er fylgi meira við uppstillingu. Allir þrír þingmenn flokksins hafa lýst yfir áhuga á að taka sæti á listanum og nái þeir kjöri verða þeir meðal þeirra þingmanna er lengst hafa setið á þingi. Einar Kristinn Guðfinnsson og Sturla Böðvarsson hafa setið samfellt á þingi síðan 1991 og Einar Oddur Kristjánsson hefur setið á þingi síðan 1995. Rúmur aldarfjórðungur er síðan Einar Kristinn tók fyrst sæti á Alþingi en það var árið 1980 og Sturla tók fyrst sæti á þingi árið 1984. Margir þeirra sem nú eru að draga sig í hlé frá þingsetu hafa setið svipað lengi eða skemur. Enginn hefur beinlínis gefið kost á sér til setu á listanum í sæti sitjandi þingmanna en það kann að breytast verði ákveðið að fara prófkjörsleiðina. Sumir þeirra sem rætt var við töldu erfitt að hafna prófkjörsleiðinni, komi tillaga á annað borð fram um þá leið, þar sem nú stefnir í að prófkjör verði haldið hjá flokknum í öðrum kjördæmum. Aðrir benda á að síðast hafi verið haldið prófkjör í kjördæminu á sama tíma og raðað hafi verið á lista í sumum öðrum kjördæmum með uppstillingu.

Skessuhorn

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is