Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 12.11.2006
| 12:09
| Uppfært
12:25
VG stillir upp í Norðvesturkjördæmi
Á fundi kjördæmisráðs Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í
Norðvesturkjördæmi í gærkvöldi var samþykkt einróma að
viðhafa uppstillingu við val á frambjóðendum á listann við næstu
alþingiskosningar.
Jón Bjarnason alþingismaður lýsti því yfir á fundinum að hann væri
reiðubúinn að leiða listann í næstu kosningum.
Á fundinum, sem haldinn var í Búðardal, voru kosnir 7 fulltrúar í uppstillinganefnd og koma þeir víðsvegar að úr kjördæminu. Er nefndinni falið að skila svo fljótt sem verða má tillögum að framboðslista. Verða tillögurnar lagðar fyrir kjördæmisráðsfund, sem afgreiðir framboðslistann og gengur frá framboðinu.
Þetta kemur fram á heimasíðu VG í Skagafirði , www.skagafjordur.com/vg
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






