30 frambjóðendur í forvali VG
Alls taka 30 frambjóðendur þátt í prófkjörinu: Andrea Ólafsdóttir, Auður Lilja Erlingsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Árni Þór Sigurðsson, Benedikt Kristjánsson, Elías Halldór Ágústsson, Emil Hjörvar Petersen, Erlendur Jónsson, Friðrik Atlason, Gestur Svavarsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Guðmundur Magnússon, Jóhann Björnsson, Katrín Jakobsdóttir, Kári Páll Óskarsson, Kolbrún Halldórsdóttir, Kristín Tómasdóttir, Kristján Hreinsson, Mireya Samper, Ólafur Arason, Paul F. Nikolov, Sigmar Þormar, Steinar Harðarson, Steinunn Þóra Árnadóttir, Svala Jónsdóttir Heiðberg, Sveinbjörn Markús Njálsson, Wojciech Szewczyk, Þorleifur Friðriksson, Þórir Steingrímsson og Ögmundur Jónasson.
Kosið er á þremur stöðum, Suðurgötu 3 í Reykjavík, Strandgötu 11 í Hafnarfirði og Hlégarði í Mosfellsbæ kl. 10-22.
Kosning fer þannig fram að skrifaður er tölustafur í reitinn framan við nafn þess sem kosinn er.
Rita skal 1 við nöfn þriggja frambjóðenda sem kjósandi vill að verði í fyrsta sæti í hverju hina þriggja kjördæma. 2 við þá þrjá sem kjósandi vill að verði í öðru sæti. 3 við þá þrjá sem kjósandi vill að verði í þriðja sæti. 4 við þá þrjá einstaklinga sem kjósandi vill að verði í fjórða sæti. Sjá nánar á www.vg.is.






