Hjálmar segist vera að svara ákalli kjósenda

Hjálmar Árnason.

Hjálmar Árnason.

eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is
„Ég hef verið þægur fyrsti stýrimaður í 12 tólf ár í 2. sætinu og finnst orðið tímabært að fyrsti stýrimaður fái að fara sem kapteinn í einn róður," segir Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, sem í gær tilkynnti að hann hygðist bjóða sig fram í fyrsta sæti flokksins í Suðurkjördæmi. Í því sæti situr fyrir Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra og varaformaður flokksins, en hann hefur leitt listann í kjördæminu sl. 12 ár.

Kemur Guðna í opna skjöldu

„Þetta kemur mér í opna skjöldu," segir Guðni í samtali við Morgunblaðið og bætir við: „Hjálmar Árnason lýsti því yfir á kjördæmisþingi okkar sem haldið var í Reykjanesbæ í nóvember sl. að hann sjálfur myndi áfram sækjast eftir því að vera í 2. sæti á framboðslistanum en lýsti því jafnframt yfir að hann styddi heilshugar framboð mitt í 1. sæti enda væri ég varaformaður flokksins og ráðherra kjördæmisins. Þannig að nú hefur honum snúist hugur og er á einhverri hringferð sem ég átta mig ekkert á." Aðspurður segist Guðni ekki hafa trú á öðru en að hann haldi 1. sætinu enda eigi hann góðan stuðning í kjördæminu öllu.

Spurður hvað búi að baki ákvörðun sinni rifjar Hjálmar upp að á síðasta kjördæmaþingi hafi verið ákveðið að fara prófkjörsleiðina í kjördæminu í stað uppstillingar. „Í því felast skýr skilaboð um breytingar á listanum," segir Hjálmar og rifjar upp að hann hafi á þeim tíma lýst því yfir að hann hygðist stefna á 2. sætið. „Í millitíðinni hafa verið haldin tvö prófkjör annarra flokka í Suðurkjördæmi þar útkoma Suðurnesjamanna hefur verið hrakleg þrátt fyrir þá staðreynd að þeir eru 45% af kjördæminu og það hefur breytt hinu pólitíska landslagi," segir Hjálmar, sem í gærmorgun var afhent áskorun tæplega tvö þúsund stuðningsmanna um að hann gefi kost á sér í 1. sætið. Tekur hann fram að hann hafi einnig fengið mikla hvatningu úr öðrum hlutum kjördæmisins, alla leið austur til Hornafjarðar. „Ég tel það skyldu stjórnmálamanns að leggja við hlustir og þegar það koma svona sterkar raddir frá kjósendum þá verður maður að bregðast við. Ég teldi það pólitískt ábyrgðarleysi að bregðast ekki við ákalli fólks í kjördæminu þveru og endilöngu."

Framboðsfrestur í prófkjör framsóknarmanna í Suðurkjördæmi rann út í gær. Alls gefa tólf frambjóðendur kost á sér. Guðni og Hjálmar gefa sem fyrr er getið báðir kost á sér í 1. sæti. Bjarni Harðarson, Björn Bjarndal Jónsson og Eygló Harðardóttir gef kost á sér í 2. sæti. Elsa Ingjaldsdóttir og Kjartan Lárusson sækjast eftir 3. sæti og Guðni Sighvatsson eftir 3.–4. sæti. Brynja Lind Sævarsdóttir sækist eftir 4. sæti. Gissur Jónsson gefur kost á sér í 4.–6. sæti. Lilja Hrund Harðardóttir og Ólafur Elvar Júlíusson gefa kost á sér í 5.–6. sæti.

Í hnotskurn
» Framboðsfrestur í prófkjör framsóknarmanna í Suðurkjördæmi rann út í gær. Alls gefa 12 frambjóðendur kost á sér.
» Hjálmar Árnason hyggst sækjast eftir 1. sætinu á listanum, en Guðni Ágústsson hefur leitt listann sl. 12 ár.
» Prófkjörið fer fram 20. janúar nk.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is