Margrét, Ómar og Jakob Frímann saman í framboð

Samkvæmt fréttum Stöðvar 2 og Ríkisútvarpsins og Sjónvarps eru Ómar Ragnarsson og Jakob Frímann Magnússon á leið í framboð með Margréti Sverrisdóttur. Er um að ræða framboð fólks úr Framtíðarlandinu og Frjálslynda flokknum sem fylgir Margréti úr flokknum.

Ómar segir á bloggvef sínum að stefnt sé að því að framboðið fái einkum græn atkvæði frá miðjunni og hægri vegna þess að úti á vinstri kantinum væri grænt framboð sem vinstri sinnað fólk gæti kosið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert