Pétur Óskarsson ekki á leið í framboð

Fulltrúar í stjórn Sólar í Straumi harma ómálefnalegar baráttuaðferðir Hags Hafnarfjarðar á lokametrum kosningabaráttunnar í Hafnarfirði. Á fundi á vegum Hafnarfjarðarbæjar í gærkvöldi, fimmtudagskvöldið 29. mars, var persóna Péturs Óskarssonar dregin inn í umræðuna, hann sagður ranglega á leið í framboð og sakaður um að vera að verja eigin hagsmuni með andstöðu sinni gegn stækkun. Pétur hefur þegar leiðrétt þessar rangfærslur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Sól í Straumi.

„Sól í Straumi er hópur einstaklinga í Hafnarfirði sem bera hag bæjarins og bæjarbúa fyrir brjósti. Við höfum undanfarna mánuði staðið fyrir málefnalegri kosningabaráttu og starfað af heilindum, öll sem eitt," að því er segir í tilkynningu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is