Býður sig fram í framkvæmdastjórn Samfylkingar

Margrét Gauja Magnúsdóttir.
Margrét Gauja Magnúsdóttir.

Margrét Gauja Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, býður sig fram í framkvæmdarstjórn Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins sem haldinn verður dagana 13.-14. apríl í Egilshöll.

Margrét Gauja er 30 ára bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og formaður íþrótta- og tómstundarnefndar Hafnarfjarðar. Hún hefur tekið þátt í starfi jafnaðarmanna síðastliðin 5 ár og var m.a. formaður Ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði og ritari Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert