Sjálfstæðisflokkur bætir við sig tveimur þingmönnum í Suðurkjördæmi

Malbikunarframkvæmdir á Suðurlandi.
Malbikunarframkvæmdir á Suðurlandi. mbl.isRAX

Sjálfstæðisflokkurinn fengi 40,9% atkvæða í Suðurkjördæmi væri gengið til kosninga nú samkvæmt skoðanakönnun sem Capacent Gallup vann fyrir Sjónvarpið og Morgunblaðið dagana 15. til 19. apríl 2007. Samfylkingin fengi 24,0%, Framsóknarflokkurinn fengi 14,2% og Vinstrihreyfingin - grænt framboð fengi 13,7%. Frjálslyndi flokkurinn fengi 4,8%, Íslandshreyfingin fengi 2,2% og Baráttusamtökin fengju 0,3%.

Sjálfstæðisflokkurinn fengi því fimm kjördæmakjörna þingmenn í kjördæminu, Samfylkingin fengi 2 þingmenn og Framsóknarflokkurinn og Vinstri grænir fengju einn þingmann hvor flokkur. Á yfirstandandi kjörtímabili hefur Samfylkingin 4 kjördæmakjörna þingmenn í kjördæminu, Sjálfstæðisflokkurinn hefur þrjá, Framsóknarflokkurinn hefur tvo og Frjálslyndi flokkurinn einn.

Úrtakið var tilviljunarúrtak úr þjóðskrá. Í því voru 800 manns 18 ára og eldri. Nettósvarhlutfall var 64,5%.

Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við þremur spurningum: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa?“ Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: „En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu?“ Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert