D-listi með 55,5% fylgi í Eyjum

Sjálfstæðisflokkur (D) fengi 40,9% atkvæða í Suðurkjördæmi væri gengið til kosninga nú samkvæmt skoðanakönnun sem Capacent Gallup vann fyrir Sjónvarpið og Morgunblaðið dagana 15. til 19. apríl. Samfylkingin (S) fengi 24,0%, Framsóknarflokkurinn (B) 14,2% og Vinstrihreyfingin – grænt framboð (V) fengi 13,7%. Frjálslyndi flokkurinn (F) fengi 4,8%, Íslandshreyfingin (I) 2,2% og Baráttusamtökin (E) fengju 0,3%.

Samkvæmt könnuninni fengi Sjálfstæðisflokkurinn fimm kjördæmakjörna þingmenn í kjördæminu, Samfylkingin tvo þingmenn og Framsóknarflokkurinn og Vinstri grænir einn þingmann hvor flokkur. Næsti maður inn væri 3. maður Samfylkingar en lítill munur er á honum og 5. manni Sjálfstæðisflokks.

Þegar fylgið er greint eftir svæðum kemur í ljós að í Árnessýslu er B-listi með hlutfallslega flesta kjósendur (23,6%). Í Vestmannaeyjum er D-listi með langmestan stuðning (55,5%). F-listi sækir hlutfallslega flesta kjósendur sína til Suðurnesja (8,3%), líkt og E-listi (0,7%) og I-listi (3,7%). Stuðningsmenn S-lista eru hlutfallslega flestir á Suðurnesjum (27,6%) og V-lista á Suðurlandi austan Árnessýslu (23,2%).

Úrtakið var tilviljunarúrtak úr þjóðskrá. Í því voru 800 manns 18 ára og eldri. Nettósvarhlutfall var 64,5%.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert