Engin fullkomin aðferð til

„Reglan um 5% kjörfylgi á landsvísu setur skorður en veitir líka rétt," segir Þorkell Helgason, stærðfræðingur og ráðgjafi landskjörstjórnar. Hér áður fyrr gátu flokkar einungis fengið uppbótarþingmann ef flokkurinn hafði náð kjördæmakjörnum manni óháð fylgi á landsvísu.

Síðari tíma lög hafa svo fest uppbótarþingmenn, sem nú heita jöfnunarmenn, við kjördæmi og þurfa flokkar 5% kjörfylgi á landsvísu til að öðlast rétt til jöfnunarþingmanns, óháð því hvort flokkur hafi náð kjördæmakjörnum manni. Það er því ekki alfarið rétt að segja að það sé örðugra nú en fyrr að fá jöfnunarmenn, segir Þorkell.

Þorkell segir menn verða að sætta sig við að engin fullkomin aðferð sé til við að úthluta þingsætum. Það séu þrjú ósamrýmanleg markmið í kosningalöggjöfinni: þingsætafjöldi skuli vera í samræmi við fylgi flokkana á landsvísu; kjördæmin hafi sín ákveðnu þingsæti og að misvægi í tölu kjósenda að baki hverju þingsæti geti verið allt að einn á móti tveimur.

Samkvæmt lokatölum á mbl.is var vægi atkvæða nærri 1:2 þar sem 2.019 kjósendur voru fyrir hvert þingsæti í Norðvesturkjördæmi á móti 3.832 í Suðvestur kjördæmi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is