Framsóknarmenn taka afstöðu til stjórnarsamstarfs í dag

Gert er ráð fyrir að þingflokkur Framsóknarflokksins taki afstöðu til þess í dag hvort stjórnarsamstarfi verði haldið áfram við Sjálfstæðisflokk. Fram kom í fréttum Útvarpsins, að líkur á áframhaldandi samstarfi hafi aukist. Þá kom fram að þingmenn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks hafi rætt óformlega um hugsanlegt ríkisstjórnarsamstarf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert