Viðræður stjórnarflokka enn í gangi

Jón Sigurðsson og Geir H. Haarde.
Jón Sigurðsson og Geir H. Haarde. mbl.is/Brynjar Gauti

Viðræður milli formanna stjórnarflokkanna um áframhaldandi samstarf standa enn yfir en þeir Geir H. Haarde og Jón Sigurðsson hafa átt tvo stutta fundi í dag. Fyrr í dag var jafnvel búist við að þingflokkur Framsóknarflokksins yrði kallaður saman til að fjalla um málið en af því hefur ekki orðið enn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert