Kristján: Fékk draumastarfið

Kristján L. Möller.
Kristján L. Möller.

Kristján L. Möller, væntanlegur samgönguráðherra, sagði við fréttamann Útvarps, að hann væri afar ánægður með að fá að gegna þessu embætti enda hefði samgönguráðuneytið verið óskaráðuneytið. Kristján sagði, að verkefni í samgöngumálum um allt land kölluðu á ríkisstjórnina en hann sagðist ætla að verða samgönguráðherra alls landsins og starfa með öllum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert