Málefnasamkomulag kynnt þingmönnum Sjálfstæðisflokksins

Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur fundað með þingmönnum sínum í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í dag. Geir hefur fundað einslega með hverjum þingmanni fyrir sig og greint þeim frá því málefnasamkomulagi sem Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin hafa gert með sér. Þeir þingmenn sem mbl.is ræddi við í dag segja að þeim lítist vel á samkomulagið, en þeir vildu lítið tjá sig um væntanlega ráðherraskipan.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert