Stefnuyfirlýsing stjórnarinnar óljós
Guðni Ágústsson. mbl.is/Ómar
„Það sem vekur athygli mína er þessi langi, óljósi kafli um stefnuyfirlýsingu. Mér finnst svo margt vera í bakherbergjunum sem maður áttar sig ekki á. Og hvort flokkarnir hafa náð um það samstöðu veit ég ekki," segir Guðni.
Ætlunarverk hinnar nýju ríkisstjórnar sé mjög hægrisinnað og flokkarnir leggist báðir á sína hægri hlið.
Sjálfstæðisflokkurinn hafi neytt afls og hyggist framkvæma hluti sem honum hefði aldrei dottið í hug í samstarfi við Framsóknarflokkinn. „Þar voru landamerki nokkuð skýr og flokkarnir virtu hvor annan. Þannig að mér sýnist í þessu að Samfylkingin sé að láta mjög eftir Sjálfstæðisflokknum, hún fái mjög rýrt út úr verkefnaskiptingunni." Samfylkingin láti frá sér heilbrigðisráðuneyti og eftir því sem sér skiljist Íbúðalánasjóð, sem fari undir fjármálaráðuneytið. „Það þýðir að hann [Íbúðalánasjóður] er að fara á líknardeild," segir Guðni. Sjálfstæðisflokkurinn ætli nú að standa við það sem hann hafi viljað í samstarfinu við framsóknarmenn, að Íbúðalánasjóður fari til bankakerfisins, en þjóðin sé þessu andsnúin.
„Síðan sér maður náttúrulega í þessum sáttmála að Sjálfstæðisflokkurinn er að snúa sér. Hann er í lokauppgjöri við tíma Davíðs Oddssonar. Davíð Oddsson reis gegn skapara sínum, frelsinu, á sínum lokaárum. Honum ógnaði þau vindaský, að hér yrðu allt of stór eignarveldi sem réðu öllu á Íslandi," segir Guðni. Nú sé aðeins einn maður eftir í ríkisstjórninni sem staðið hafi fast með Davíð í þessum málum, en það sé Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra. Sjálfstæðismenn muni láta Björn sitja stutt í nýju stjórninni „og svo tekur auðvitað Bjarni Benediktsson frændi hans við," segir Guðni. Ljóst sé að nýr tími sé hafinn í Sjálfstæðisflokknum. Það sjáist einna gleggst á því að flokkurinn, sem hafi á sínum tíma lagst gegn EES-samningnum, vilji nú opinskáa umræðu um Evrópumál. „Þau voru ekki á dagskrá í gær," bendir Guðni á.
Um landbúnaðarmálin segir Guðni að sjálfstæðismenn virðist stefna á það að hluta í sundur landbúnaðarráðuneytið. Skógrækt og landgræðsla eigi að fara undir umhverfisráðuneytið, en þessir málaflokkar séu um allan heim taldir til landbúnaðar. Þá eigi að taka landbúnaðarháskólana, sem byggðir hafi verið upp sem atvinnuvegaskólar og færa undir menntamálaráðuneytið og af þessu hafi hann áhyggjur.
Guðni kveðst telja miklar pólitískar breytingar framundan og þær muni breyta verulega íslensku samfélagi á næstu árum. „Ég hygg að við munum sjá hérna glaðbeitta hægri stjórn með mikinn þingstyrk," segir Guðni. Í styrkleika stjórnarinnar kunni þó veikleikar hennar að liggja. "Stórir þingmeirihlutar falla oftast fyrst," segir hann.






