Svangir fingralangir

mbl.is/Július

Brotist var inn í pylsuvagn sem stendur í Hafnarstræti á Akureyri í nótt, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar, en innbrotsþjófarnir voru gripnir á staðnum og munu ekki hafa haft neitt upp úr krafsinu.

Að sögn lögreglu voru unglingar þarna að verki, en hvort þeir voru svangir eða í leit að peningum liggur ekki alveg fyrir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert