Jón Sigurðsson: Afsögn Björgvins kom ekki á óvart

Jón Sigurðsson, fráfarandi stjórnarformaður FME. stækka

Jón Sigurðsson, fráfarandi stjórnarformaður FME.

„Alls ekki algjörlega, þetta hefur lengi verið í umræðunni,“ segir Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, aðspurður hvort afsögn Björgvins G. Sigurðssonar, viðskiptaráðherra, hafi komið honum á óvart.

Jón var á stjórnarfundi í Fjármálaeftirlitinu þegar blaðamaður mbl.is náði tali af  honum. Samhliða afsögn sinni fól Björgvin Jóni og öðrum stjórnarmeðlimum FME að ganga frá starfslokum Jónasar Fr. Jónssonar, forstjóra FME, og óskaði jafnframt eftir því að stjórn FME segði í kjölfarið af sér. Jón vildi ekki tjá sig um það að svo stöddu. 

„Ástæða ákvörðunar minnar er sú sannfæring mín að nauðsynlegt sé að ryðja brautina fyrir uppgjör og uppbyggingu sem byggi á trausti almennings. Forsendur fyrir því að skapa frið og traust í samfélaginu til endurreisnar eru meðal annars þær að stjórnmálamenn og stjórnendur stofnana samfélagsins axli ábyrgð,“ segir Björgvin í bréfi til Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, þar sem hann tilkynnir um afsögn sína.

Fjármálaeftirlitið hefur legið undir gagnrýni fyrir að hafa sofið á verðinum í aðdraganda bankahrunsins. Einnig hafa þær raddir verið háværar að röng hugmyndafræði hafi verið við lýði við bankaeftirlit á Íslandi. M.a sagði Gylfi Magnússon, dósent við HÍ, í samtali við Morgunblaðið nýlega að eftirlitsstofnanirnar hefðu verið einhvers konar bakhjarl, fremur en varðhundur kerfisins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is