Styðja ákvörðun Björgvins

Björgvin G. Sigurðsson tilkynnir um afsögn sína á blaðamannafundi í …
Björgvin G. Sigurðsson tilkynnir um afsögn sína á blaðamannafundi í Viðskiptaráðuneytinu í gærmorgun. Golli

Stjórn kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi lýsir yfir
stuðningi við Björgvin G. Sigurðsson og þær ákvarðanir sem hann kynnti
í gær.

„Með afsögn sinni og ákvörðun um að hreinsa til í yfirstjórn
Fjármálaeftirlitsins sýnir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra,
pólitískan kjark og heiðarleika og er sá eini, enn sem komið er, sem
hefur axlað pólitíska ábyrgð á bankahruninu og afleiðingum þess.

Þessar ákvarðanir verða að vera fyrsta skrefið í þeirri uppstokkun sem
Samfylkingin hefur barist fyrir innan ríkisstjórnarinnar, næsta skref
á að vera endurnýjun yfirstjórnar Seðlabanka," að því er segir í ályktun kjördæmaráðsins.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert