Innlent
|
Kosningar
| mbl
| 27.1.2009
| 14:36
Flokksráð VG boðað til fundar
Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs verður haldinn
klukkan 20.30 í kvöld á Grand Hóteli í Reykjavík. Fram kemur í
fundarboði, að lög VG kveði á um samráð þingflokks og flokksráðs komi
til stjórnarmyndunar með þátttöku flokksins.
Í flokksráði sitja 30 fulltrúar kjörnir á landsfundi en auk þeirra eiga
sæti í ráðinu allir kjörnir sveitastjórnarfulltrúar, alþingismenn,
varaþingmenn, formaður Ungra Vinstri grænna, formenn svæðisfélaga og formenn
kjördæmisráða.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






