Ný stjórn hefur 83 daga til stefnu
Alþingiskosningar fara fram laugardaginn 25. apríl, samkvæmt samkomulagi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, Samfylkingarinnar og Framsóknarflokks. Ný ríkisstjórn undir forsæti Jóhönnu Sigurðardóttur, hefur því 83 daga til að hrinda í framkvæmd sínum efnahagsaðgerðum, meðal annars aðgerðum til bjargar heimilum og fyrirtækjum.
Reiknað er með að ný ríkisstjórn Samfylkingar og VG taki við á ríkisráðsfundi á Bessastöðum eftir hádegið á morgun, að loknum ríkisráðsfundi með fráfarandi ríkisstjórn Geirs H. Haarde.
Þingflokkur VG hittist í fyrramálið þar sem ráðherralisti flokksins verður afgreiddur. Þá kemur þingflokkur Samfylkingar til fundar klukkan 9 í fyrramálið og gengur frá sínum ráðherralista. Að loknum þingflokksfundi Samfylkingar hittist flokksstjórnin en það er sú stofnun sem endanlega blessar væntanlegt ríkisstjórnarsamstarf.
Myndasyrpa: Stjórnmál á laugardegi
Birtingardagur: Laugardaginn, 31. janúar 2009






