15-20 stjórnarfrumvörp
Ríkisstjórnin mun leggja fram 15-20 frumvörp á Alþingi, sem hún leggur áherslu á að verði afgreidd fyrir þinglok. Þetta kom fram á blaðamannafundi oddvita stjórnarflokkanna í dag málaskrá var lögð fram á fyrsta ríkisstjórnarfundi nýju stjórnarinnar í morgun.
Jóhanna sagði að einnig hefði verið ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar að halda vikulega blaðamannafundi og einnig muni ríkisstjórnin reyna að halda mjög góðu samráði við aðila vinnumarkaðarins og hagsmunaaðila og upplýsa þá um gang mála.
Fram kom að þau mál, sem ríkisstjórnin leggur áherslu á miða að því að styðja við heimilin í landinu og koma bönkunum og atvinnulífinu í gang að nýju. M.a. var samþykkt að afgreiða frumvarp um greiðsluaðlögun til þingflokka. Sagist Jóhanna vona að gott samstarf yrði við stjórnarandstöðuna á Alþingi um afgreiðslu mála.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði að af hálfu fjármálaráðuneytisins sé í upphafi lögð áhersla á frumvarp um skyldusparnað þar sem fólki verði heimilað að taka út séreignalífeyrissparnað. Sagði Steingrímur að þetta yrði gert í samráði við lífeyrissjóða og aðra aðila sem hlut ættu að máli þannig að ekki verði mikil röskun í greiðslukerfinu.
Jóhanna sagði, að fullkomin samstaða væri um það milli stjórnarflokkanna að fylgja eftir samkomulaginu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og ljóst væri, að ríkisstjórnin verði að hafa hraðar hendur við að undirbúa komu fulltrúa sjóðsins hingað síðar í febrúar.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði að samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn væri sá grunnur, sem efnahagsáætlun Íslands byggði á og skipti því miklu máli. Steingrímur sagði, að allir Íslendingar hlytu að vera sammála um það að því minni erlend lán sem tekin verða, því betra og ekki væri sérstakt keppikefli að hlaða skuldum á þjóðarbúið.
Steingrímur sagði að stjórnvöld myndu undirbúa fund með fulltrúum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins af kostgæfni og þar yrði rætt hversu hratt Íslendingar gætu hafið vaxtaákvörðunarferli. Sagði Steingrímur, að Ísland skeri sig úr nágrannalöndunum því Íslendingar glími við verstu kreppuna en séu jafnframt með hæstu vextina.
Jóhanna Sigurðardóttir sagði, að ríkisstjórnin legði einnig mikla áherslu á lýðræðisumbætur sem fælu í sér breytingar á stjórnarskránni. Um það þyrfti að ræða við alla flokka. Hafa formenn stjórnmálaflokkana verið boðaðir á fund klukkan 15 í dag þar sem þeim verða kynntar tillögur um að kjördagur verði 25. apríl og einnig þau mál sem stjórnin leggur áherslu á.






