Vilja endurnýjun á framboðslistum

Sjálfstæðisfélagið Óðinn á Selfossi hefur samþykkt ályktun þar sem stjórn félagsins skorar á nýja frambjóðendur til þess að gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.

Í ályktuninni segir, að almenn og víðtæk krafa um breytingar og lýðræðislegar umbætur kalli á endurnýjun á framboðslistum í samræmi við vilja og óskir íbúa kjördæmisins. Þá sé mikilvægt að þeir sem skipi framboðslistann, sem boðinn verði fram í  komandi alþingiskosningum, endurspegli fjölbreytileika og kraft Suðurkjördæmis. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert