Sækist eftir öðru sæti á D-lista í Norðausturkjördæmi

Soffía Lárusdóttir stækka

Soffía Lárusdóttir

Soffía Lárusdóttir, hefur ákveðið að sækjast eftir öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar í vor. Soffía er forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs og framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Austurlandi.

Soffía segir að mikil vinna sé framundan við endurreisn íslensks samfélags. Mikilvægt sé að til þess veljist nýtt fólk með mismunandi þekkingu og reynslu. Soffía hefur víðtæka reynslu af stjórnun og uppbyggingu í héraði og á landsvísu. Sú reynsla hefur margvíslega skírskotun við endurreisn landsins. 

Soffía er 48 ára gömul, fædd og uppalin á Kirkjubæjarklaustri en hefur verði búsett á Egilsstöðum í 24 ár. 

Hún er með B.A. próf í þroskaþjálfafræðum og hefur lokið diplómanámi í opinberri stjórnsýslu og stjórnun frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands.

Soffía hefur verið forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs frá 2004 og setið í bæjarráði frá 2006. Hún er varaformaður launanefndar sveitarfélaga.

Soffía er formaður sveitarstjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins og situr í miðstjórn hans. Hún á sæti í fulltrúaráði Sjálfstæðisfélags Fljótsdalshéraðs og er fulltrúi í stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna.

Hún tók sæti í bæjarstjórn Austur - Héraðs árið 1998 og var formaður bæjarráðs til 2002 og síðan forseti bæjarstjórnar til sameiningar þeirra þriggja sveitarfélaga sem í dag mynda Fljótsdalshérað.

Hún var formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi 2003 – 2006.

Maki Soffíu er Hjalta Jón Sveinsson, skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri og bæjarfulltrúi. Eiga þau fimm börn og sjö barnabörn.   
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent, Kosningar — Fleiri fréttir

Föstudaginn 25. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Föstudaginn 11. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Laugardaginn 28. apríl

Fimmtudaginn 26. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl

Mánudaginn 23. apríl

Laugardaginn 21. apríl

Fimmtudaginn 19. apríl


finnur.is