Gefur kost á sér í 3.-4. sæti á lista VG í Kraganum

Ólafur Þór Gunnarsson.
Ólafur Þór Gunnarsson.

Ólafur Þór Gunnarsson, öldrunarlæknir og bæjarfulltrúi í Kópavogi, gefur kost á sér í 3.-4. sæti í forvali VG í Suðvesturkjördæmi. 

Fram kemur í tilkynningu að Ólafur hafi verið bæjarfulltrúi VG í Kópavogi frá 2006 en hefur auk þess gengt öðrum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn, og á nú sæti í aðalstjórn hans.

Þá segir að starfsvettvangur Ólafs hafi verið víða en síðustu ár hafi fyrst og fremst verið á sviði öldrunarlækninga og endurhæfingar og líkamsræktar aldraðra. Ólafur starfar nú sem öldrunarlæknir á öldrunarsviði Landspítalans á Landakoti. 

„Helstu baráttumál eru velferðarmál og  styrking velferðarkerfisins.  Heilbrigðisþjónusta og menntakerfið eru  mikilvægar grunnstoðir sem þarf að vernda og styrkja á erfiðum tímum.  Málefni aldraðra eru Ólafi sérstaklega hugleikin en á þeim vettvangi hefur hann starfað síðastliðin 14 ár. Náttúruvernd og sjálfbær nýting náttúruauðlinda eru einnig meðal áhugasviða Ólafs,“ segir í tilkynningunni.

„Gegnsæi í stjórnsýslu og auknir möguleikar almennings til þátttöku og aðkomu að ákvörðunum eru afar mikilvæg. Ég vil hverfa frá þeirri hugmyndafræði að stjórnmálamenn geti sótt umboð sitt á fjögurra ára fresti, en séu þess á milli úr tengslum við kjósendur. Hagsmunir þjóðarinnar eru að losa ofurtök sérhagsmuna  og fjármagnsafla og að stjórn landsins haldi tiltrú fólksins. Aukin áhrif almennings milli kosninga munu verða lykilatriði í því nýja velferðarsamfélagi sem við viljum byggja upp.
Rödd Vinstri grænna hefur aldrei verið mikilvægari en  nú, og aðkoma VG að uppbyggingarstarfi næstu ára er grundvallaratriði. Þar vil ég leggja mitt af mörkum og óska eftir stuðningi  kjósenda,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Ólafur Þór er 45 ára og kvæntur Elínborgu Bárðardóttur heimilislækni. Þau eiga 3 syni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert