Skúli í prófkjör Samfylkingarinnar
Skúli Helgason sækist eftir 4. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík, sem haldið verður 14. mars. Skúli hefur verið framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar undanfarin þrjú ár en hann hefur sagt starfi sínu lausu og hættir á morgun.
Skúli segir m.a. í tilkynningu, að hann vilji taka til hendinni og forgangsraða í þágu fjölskyldna í landinu. Þá leggi hann mikla áherslu nauðsyn þess að endurskoða uppbyggingu ríkiskerfisins. Endurskoða þurfi fjárlagagerðina frá grunni, hagræða eða leggja niður verkefni sem ekki feli í sér nauðsynlega þjónustu við almenning til að skapa svigrúm fyrir velferðarþjónustuna, atvinnusköpun og menntamál.
Þá segist Skúli leggja mikla áherslu á Evrópumál og telji að komandi kosningar muni ekki síst snúast um afstöðuna til Evrópusambandins. Aðild að Evrópusambandinu sé lykillinn að því að færa þjóðinni efnahagslegan stöðugleika eftir hrun fjármálakerfisins og vísar veginn til betri lífskjara.
Skúli Helgason er menntaður stjórnmálafræðingur, með meistarapróf í opinberri stjórnsýslu frá University of Minnesota í Bandaríkjunum og B.A. próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Hann er 43 ára, kvæntur Önnu-Lind Pétursdóttir lektor í sálfræði og eiga þau tvo syni, Teit Helga og Berg Mána auk þess sem þriðji drengurinn er á leiðinni á næstu vikum. Elsti sonur Skúla er Darri Skúlason.






